Ingvar ráðinn slökkviliðsstjóri Brunavarna A-Húnavatnssýslu

Ingvar Sigurðsson.
Ingvar Sigurðsson. Ljósmynd/Aðsend

Stjórn Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu hefur ráðið Ingvar Sigurðsson sem slökkviliðsstjóra Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu og mun hann hefja störf, í fullu starfi, eigi síðar en 1. maí 2019. 

Fram kemur í tilkynningu, að Ingvar sé löggiltur slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og hafi starfað í tæp 10 ár sem hlutastarfandi slökkviliðsmaður hjá Brunavörnum Árnessýslu 2009-2019. Hann starfi núna sem einn af fjórum vakthafandi varðstjórum slökkviliðsins, og sinni þar bakvöktum og þjálfun. Einnig hafi hann starfað við sjúkraflutninga hjá HSu á árinu 2015.

Þá segir, að Ingvar hafi aflað sér leiðbeinendaréttinda tengdum starfi sínu í slökkviliðinu, þar á meðal sé hann leiðbeinandi í skyndihjálp, notkun hitamyndavéla og hurðarrofstækni. Hann hafi farið á fjölda námskeiða hjá Brunamálaskólanum, þar á meðal þjálfunarstjóra- og stjórnendanámskeið ásamt því að sækja stjórnendanámskeið hjá Endurmenntun HÍ.

Þá sé hann menntaður fangavörður og starfaði sem slíkur í rúm sjö ár á Litla-Hrauni 2008-2015 en starfi nú sem varðstjóri í fangelsinu á Hólmsheiði 2018-2019. Einnig sé hann menntaður lögreglumaður frá Lögregluskóla ríkisins og starfaði sem slíkur í um 2 ár hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi 2016-2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert