Varað við snjóflóðahættu

Snjóflóðahætta er möguleg snemma í dag á eftirfarandi vegum: Súðavíkurhlíð, Kirkjubólshlíð og Hvilftarströnd, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Færð á vegum

Suðvesturland: Víða eru vegir greiðfærir en eitthvað um hálkubletti. Hálka er á Sandskeiði og Þrengslum en hálka og þoka á Hellisheiði. Krapasnjór er á Mosfellsheiði en flughálka á Kjósarskarði.

Vesturland: Hálka eða snjóþekja á vegum og eitthvað um éljagang. Á Snæfellsnesi er flughálka er á milli Fróðárheiðar og Vatnaleiðar, þæfingsfærð á Fróðárheiði en snjóþekja og snjókoma er á norðanverðu nesinu.

Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum. Þæfingsfærð er á Steingrímsfjarðarheiði. Þröskuldum og Klettshálsi. Snjókoma, éljagangur eða skafrenningur nokkuð víða.

Norðurland: Hálka eða snjóþekja og snjókoma eða éljagangur á flestum leiðum. Flughálka er frá Hofsós að Ketilás.

Norðausturland: Snjóþekja eða hálka og snjókoma og skafrenningur á flestum leiðum. Þæfingsfærð er á Mývatnsöræfum. Flughálka er á Breknaheiði og í Vopnafirði en ófært og stórhríð á Hófaskarði og Hálsum.  

Austurland: Hálka eða hálkublettir á vegum. Snjóþekja og snjókoma er á Fjarðarheiði.

Suðausturland: Hálka eða hálkublettir á vegum. Flughálka er á milli Jókulsárlóns og Kvískers.

Suðurland: Suðurlandsvegur er að mestu greiðfær en hálkublettir á öðrum leiðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert