Tveir menn reyndu að tæla barn upp í bifreið sem þeir voru í um klukkan ellefu í morgun. Ekki náðist í lögreglu til að fá upplýsingar um hvar í borginni atvikið átti sér stað en þetta kemur fram í dagbók lögreglu á stöð þrjú sem er í Kópavogi og Breiðholti.
Einnig var brotist inn í bíl í austurborginni og verkfærum stolið úr honum og jafnframt var tilkynnt um innbrot og þjófnað í fyrirtæki.