Gagnaver reyndist Blönduósi hvalreki

Frá Blönduósi.
Frá Blönduósi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hreyfing er komin á atvinnulíf og fasteignamarkað á Blönduósi eftir uppbyggingu gagnavers á svæðinu. Er sveitarfélagið nú að úthluta lóðum fyrir íbúðir eftir langvarandi kyrrstöðu á markaðnum.

Að sögn Valdimars O. Hermannssonar sveitarstjóra er bjartsýni nú ríkjandi í samfélaginu og segir hann framkvæmdina hafa verið hvalreka fyrir verktaka og þetta 940 manna samfélag.

Þannig má til að mynda nefna að fyrsta einbýlishúsið sem rís á Blönduósi í tíu ár var byggt í fyrra, að því er fram kemur um áhrif gagnavers á Blönduósi í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka