Sindri hættir sem formaður

Í tilkynningu segir að Sindri taki við nýju starfi í …
Í tilkynningu segir að Sindri taki við nýju starfi í apríl sem svæðisstjóri Arion banka á Vesturlandi. mbl.is/Styrmir Kári

Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, hefur óskað eftir því að fá að stíga til hliðar sem formaður samtakanna, en hann hefur gegnt stöðunni frá 2013. Þetta kemur fram á vef Bændasamtakanna.

Þar segir að Sindri taki við nýju starfi í apríl sem svæðisstjóri Arion banka á Vesturlandi og í ljósi þess lætur hann af öllum trúnaðarstörfum fyrir samtök bænda.

Við formannsembættinu tekur núverandi varaformaður samtakanna, Guðrún Tryggvadóttir, 1. mars. Guðrún er menntaður kennari en rekur sauðfjárbú í Svartárkoti í Bárðardal í Suður-Þingeyjarsýslu með systur sinni og fjölskyldum þeirra.

Guðrún er fyrsta konan til að gegna formennsku í heildarsamtökum bænda á Íslandi.

„Þetta hefur verið lærdómsríkur tími og gríðarmiklar breytingar orðið.  Þau sex ár sem ég hef verið formaður Bændasamtakanna hafa verið annasöm og krefjandi en umfram allt skemmtilegur tími. Oft hefur blásið hressilega á móti í umræðu um landbúnaðarmál en alltaf er jafn ánægjulegt að sjá hvað velvild almennings er mikil gagnvart íslenskum bændum. Á þessum tíma hef ég kynnst mörgu fólki úr öllum greinum samfélagsins, með mismunandi skoðanir á öllu því sem tengist landbúnaði. Öllu þessu fólki vil ég þakka gott samstarf og hressileg skoðanaskipti. Samstarfsfólki mínu og framvarðasveit landbúnaðarins þakka ég kærlega fyrir frábært samstarf,“ segir Sindri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert