Tilkynnt var um þjófnað úr verslun í Vesturbæ Reykjavíkur laust eftir kl. 13 í dag. Maður hafði komið sér inn um bakdyr verslunarinnar og inn í starfsmannarými, þaðan sem hann stal eigum starfsfólks, til dæmis símum og veski.
Maðurinn var gripinn við verknaðinn, en náði að koma sér í burtu á hlaupum, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglu, sem hefur þennan þjófnað til rannsóknar.