Útboði vegna kaupa á sjúkrabílum enn frestað

Opnun útboðs vegna fyrirhugaðra kaupa á sjúkrabílum hefur verið frestað …
Opnun útboðs vegna fyrirhugaðra kaupa á sjúkrabílum hefur verið frestað fram í ágúst. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Sjúkratryggingar Íslands hafa að ósk heilbrigðisráðuneytisins fengið opnun útboðs vegna kaupa á sjúkrabílum frestað fram í ágúst. Ástæðan eru samningaviðræður milli ráðuneytisins og Rauða krossins á Íslandi sem þarf að leiða til lykta, en forsenda þess að útboð geti farið fram er að samkomulag náist í viðræðum milli aðila.

Þetta kemur fram á vefsíðu heilbrigðisráðuneytisins.

Áður hefur verið greint frá því að nýir sjúkrabílar hafa ekki verið teknir í notkun hér á landi síðan í janúar 2016. Tilboð í útboði Ríkiskaupa vegna kaupa á 25 nýjum sjúkrabílum áttu að opna 14. mars eftir ítrekaðar frestanir.

Í yfirlýsingu heilbrigðisráðuneytisins og Rauða krossins á Íslandi kemur fram að um alllangt skeið hafi verið unnið að samkomulagi varðandi samning sem hefur verið í gildi um útvegun og rekstur sjúkrabíla á hendi Rauða krossins.

Aðilar eru sammála um að meginmarkmiðið verði að vera að tryggja landsmönnum áfram örugga sjúkraflutninga og sjá til þess að unnt verði að ráðast sem fyrst í nauðsynlega endurnýjun sjúkrabíla. Nauðsynlegt sé að skoða allar leiðir að lausnum til lengri og skemmri tíma litið þannig að rekstur og endurnýjun sjúkrabílaflotans geti komist í eðlilegt horf hið allra fyrsta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert