Tveir menn voru handteknir í miðborginni laust eftir klukkan fjögur í nótt en þeir höfðu borið fyrir sig hnífa í átökum. Mennirnir voru vistaðir í fangageymslum í þágu rannsóknar málsins.
Um hálffimmleytið barst tilkynning um þrjá menn í tökum dyravarða í miðborginni. Þeir munu hafa tekið þátt í átökum. Lögregla fór að vettvangi og tók við úrlausn málsins, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Lögregla fór að heimili í austurborginni um klukkan fjögur í nótt. Þar hafði íbúi komið heim af skemmtanalífinu og sofnað ölvunarsvefni með pítsu í ofninum.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu að verslun í Kópavogi um klukka átta í gærkvöldi. Þar hafði maður reynt að hafa með sér kjötmeti án þess að inna af hendi greiðslu.
Tilkynnt var um innbrot í tvær bifreiðar í gærkvöldi, aðra í vesturborginni en hina í austurbænum og um eittleytið í nótt fann lögregla fíkniefni og piparúða í húsleit í Breiðholtinu.
Sex ökumenn voru stöðvaðir í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.