Réttarstaða þolenda kynferðisofbeldis

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir dómsmálaráðherra á fundinum.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir dómsmálaráðherra á fundinum. Skjáskot

Háskólinn í Reykjavík stendur fyrir fundi um réttarstöðu þolenda kynferðisofbeldis í dag frá 13:30 til 17. Þar verður meðal annars kynnt ný skýrsla um stöðu brotaþola á Norðurlöndunum, ásamt tillögum um breytta réttarstöðu brotaþola á Íslandi. Skýrslan er unnin af Hildi Fjólu Antonsdóttur, doktorsnema í réttarfélagsfræði við Háskólann í Lundi. Einnig verður fjallað um breytingar á meðferð kynferðisbrota sem nú standa yfir í tengslum við aðgerðaáætlun dómsmálaráðuneytisins og aðra stefnumótun á vettvangi stjórnvalda. 

Hægt er að fylgjast með útsendingu frá fundinum hér að neðan.

Í pallborði í lok fundar sitja fræðimenn, fagaðilar úr réttarvörslukerfinu og fagaðilar sem vinna með brotaþolum, auk baráttukvenna sem hafa beina reynslu sem brotaþolar. 

Dagskrá

13.30 Setning
- Fundarstjóri setur ráðstefnuna.

13.40 Ávarp
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir dómsmálaráðherra.

13.50 Réttlát málsmeðferð með tilliti til þolenda kynferðisbrota
- Hildur Fjóla Antonsdóttir, skýrsluhöfundur og
doktorsnemi í réttarfélagsfræði.

14.30 Áfallamiðað refsivörslukerfi?
- Svala Ísfeld Ólafsdóttir, sérfræðingur í dómsmála-
ráðuneytinu og dósent við lagadeild HR.

14.50 Kaffihlé

15.10 Pallborðsumræður

Dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, dósent við sálfræðideild HR, Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, Berglind Eyjólfsdóttir, lögreglukona í Bjarkarhlíð, Agnes Björg Tryggvadóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði og teymisstjóri áfallateymis Landspítala, Elva Dögg Ásu- og Kristinsdóttir réttargæslumaður, Símon Sigvaldason, dómstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur, og Linda Björg Guðmundsdóttir og Elín Hulda Harðardóttir, brotaþolar og baráttukonur.

17.00 Ráðstefnuslit

Fundarstjóri: Halla Gunnarsdóttir, formaður stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðisofbeldi og ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert