Í beinni: Athafnaborgin Reykjavík

Fjallað verður um skapandi greinar, verslun, þjónustu og nýsköpun á …
Fjallað verður um skapandi greinar, verslun, þjónustu og nýsköpun á opnum fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag undir yfirskriftinni „Athafnaborgin 2019“. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Opinn fundur um athafnaborgina Reykjavík fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur milli klukkan 9 og 11. Beint streymi af fundinum má finna hér að neðan. 

Fjallað verður um skapandi greinar, verslun, þjónustu og nýsköpun. Sagt verður frá uppbyggingarverkefnum sem eru að taka á sig mynd í borgarumhverfinu, sem og verkefnum sem enn eru á hugmyndastigi. Einnig verður fjallað um hönnunardrifna nýsköpun, sem og stöðu og þróun verslunar í borginni.

Dagskrá:

  • Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs: Hvað getur borgin gert fyrir atvinnulífið?
  • Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri: Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Reykjavík – staða og horfur
  • Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt: Landsbankinn – fjölbreytt atvinnu- og verslunarhúsnæði í miðborginni
  • Árni Geir Magnússon, framkvæmdastjóri Grósku: Gróska - hugmyndahús í Vatnsmýri
  • Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt: Landspítali Háskólasjúkrahús  – nýr meðferðarkjarni
  • Ragna M. Guðmundsdóttir, stofnandi Mstudio - Innovationlab: Hönnunardrifin nýsköpun – lykill að samkeppnisforskoti framtíðarinnar
  • Árni Sverrir Hafsteinsson, forstöðumaður Rannsóknarseturs Verslunarinnar: Verslun í Reykjavík – greining á stöðu og framtíðarþróun

Fundarstjóri er Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs. Blaðamaður mbl.is er á staðnum og mun fjalla nánar um fundinn að honum loknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert