Tillaga Andrúms vann

Fyrirmynd leikskólans sem teiknaður er á horni Suðurstrandar og Nesvegar …
Fyrirmynd leikskólans sem teiknaður er á horni Suðurstrandar og Nesvegar er barnshöndin. Teikning/Andrúm arkitektar

Andrúm arkitektar fengu fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni sem haldin var um nýjan leikskóla á Seltjarnarnesi. Niðurstaðan var kynnt 17. maí við opnun sýningar á öllum innsendum tillögum en þær voru 27 talsins frá innlendum og erlendum arkitektum.

Vinningstillagan heitir Undrabrekka og eru höfundar hennar arkitektarnir Haraldur Örn Jónsson, Hjörtur Hannesson og Kristján Garðarsson. Í umsögn dómnefndar um vinningstillöguna segir m.a.:

„Mjög metnaðarfull tillaga sem mætir vel forsendum í keppnislýsingu. Heildaryfirbragð leikskólans er áhugavert og ásýnd hans styrkir miðbæjarrými Seltjarnarness. Byggingin er skemmtilega brotin upp og vel staðsett á lóð með tilliti til aðkomu og umferðar. Með því að byggja yfir bílastæði náði þessi tillaga stærsta útisvæði þeirra tillagna sem komust á 2. þrep keppninnar.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert