Gerðardómur fallinn um raforkuverð Elkem

Upphaflegur rafmagnssamningur milli Elkem og Landsvirkjunar er frá árinu 1975.
Upphaflegur rafmagnssamningur milli Elkem og Landsvirkjunar er frá árinu 1975. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Gerðardómur hefur komist að niðurstöðu um rafmagnsverð í framlengdum rafmagnssamningi milli Landsvirkjunar og Elkem Ísland ehf. vegna verksmiðjureksturs Elkem á Grundartanga. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun.

Upphaflegur rafmagnssamningur milli fyrirtækjanna tveggja er frá árinu 1975 og hefur honum verið breytt sex sinnum, en verksmiðja Elkem hóf rekstur árið 1979. Gilti rafmagnssamningurinn til ársins 2019 og var Elkem samkvæmt samningnum heimilt að framlengja gildistímann um 10 ár, eða til ársins 2029.

Ákvað Elkem að framlengja samninginn og vísa jafnframt ákvörðun um rafmagnsverðið til gerðardóms.

Gerðardómurinn hefur nú komist að niðurstöðu um rafmagnsverðið, sem mun gilda frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2029. Ekki er gefið upp í fréttatilkynningunni hvert hið nýja raforkuverð er, en gerðardómi bar að taka ákvörðun um nýtt rafmagnsverð með hliðsjón af sambærilegum rafmagnssamningum við stórnotendur í málmframleiðslu á Íslandi.

„Gott er að niðurstaða gerðardómsins skuli nú liggja fyrir enda hefur ferlið um nýtt rafmagnsverð verið langt og umfangsmikið. Við höfum átt farsæl viðskipti við Elkem og forvera þess í rúm 40 ár og lítum björtum augum til áframhaldandi samstarfs við fyrirtækið,“ er haft eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar í tilkynningunni.

Elkem er fjórði stærsti viðskiptavinur Landsvirkjunar og nemur rafmagnsmagn samningsins 127 MW og 1.035 GWst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert