Bræðurnir á Akureyri fundnir

mbl.is/Eggert

Lögreglan á Akureyri óskar liðsinnis almennings við að finna tvo unga bræður, 5 og 6 ára, sem fóru af heimili sínu í morgun og sáust síðast á Drottningarbraut um klukkan 7.

Þeir eru klæddir í úlpur, annar í dökkblárri og hinn í ljósblárri, og líklega með reiðhjólahjálma á höfði.

Þeir sem veitt geta upplýsingar eru vinsamlegast beðnir að hafa samband í síma 444-2800.

Uppfært kl. 9:55: Piltarnir eru fundnir og þakkar lögreglan almenningi fyrir upplýsingar og samvinnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert