Torfærukeppni Bíladaga á Akureyri stendur nú yfir á þessari árlegu hátíð sem haldin er um helgina. Mikill fjöldi fólks er mættur til að horfa á ökumenn sýna listir sínar og er stemningin góð samkvæmt heimildum fréttastofu mbl.is.
Þór Þormar Pálsson var fljótastur í tímabraut og kom í mark á 46 sekúndum.
Sandspyrnukeppni hefst síðar í dag og stendur fram á kvöld. Götuspyrna og burn-out eru á dagskrá morgundagsins. Keppni í drift fór fram í gær og var þar mikið um dýrðir.