Þingflokksformenn funda

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, gerði hlé á þingfundi til …
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, gerði hlé á þingfundi til þess að funda með formönnum þngflokka. mbl.is/​Hari

Þingfundi var rétt í þessu frestað í fimmtán mínútur og sagði forseti Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon, að á meðan hléinu stendur mun forseti funda með formönnum þingflokkana. Ekki er vitað hvort fari að draga til tíðinda varðandi þinglokin, en eins og sakir standa nú eru 9 mál eftir á dagskrá þingsins og þó nokkur mál eftir hjá nefndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert