Þekking skapar orðspor

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, fjallaði meðal annars um …
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, fjallaði meðal annars um gott gengi Marels í ávarpi sínu við brautskráningu í dag. Háskóli Íslands/Kristinn Ingvarsson

Rektor Háskóla Íslands, Jón Atli Benediktsson, segir ánægjulegt að sjá stóraukna sókn í kennaranám í haus. Hann gerði hátæknifyrirtækið Marel að umtalsefni í ávarpi sínu við brautskráningu kandídata í dag en þar sjáist vel ávinningur af nýsköpunar- og frumkvöðlastarfi.

„Nú stefnir í gríðarlega aðsókn að námi á menntavísindasviði á komandi skólaári. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi kennarastarfsins í okkar samfélagi og er afar brýnt að það sé metið að verðleikum.“

Alls eru 2.010 kandídatar brautskráðir frá Háskóla Íslands í tveimur athöfnum í dag. Sú fyrri hófst klukkan 10 en þar taka kandídatar í grunnnámi, þ.e. BA-, B.Ed.- og BS-námi, við útskriftarskírteinum sínum. Alls voru 1165 kandídatar brautskráðir úr grunnnámi að þessu sinni. Í þeirra hópi eru fyrstu nemendurnir sem brautskrást úr BS-námi í íþrótta- og heilsufræði sem hófu nám í Reykjavík eftir að námið var flutt frá Laugarvatni til borgarinnar.

Seinni brautskráningarathöfnina sækja nemendur sem eru að ljúka framhaldsnámi til prófgráðu, þ.e. meistara- og kandídatsnámi, og hefst hún kl. 14. Alls ljúka 845 kandídatar námi á framhaldsstigi frá Háskóla Íslands nú. Þeirra á meðal eru fyrstu nemendurnir sem ljúka MS-prófi í sjúkraþjálfun og þá brautskráist einnig fyrsti nemandinn með M.Ed.-gráðu í menntun án aðgreiningar.

Sex þúsund starfsmenn í 30 löndum

Alls eru 2.010 kandídatar brautskráðir frá Háskóla Íslands í tveimur …
Alls eru 2.010 kandídatar brautskráðir frá Háskóla Íslands í tveimur athöfnum í dag. Háskóli Íslands/Kristinn Ingvarsson

Rektor Háskóla Íslands vék að mikilvægi þekkingarsköpunar og markviss nýsköpunarstarfs þegar hann ávarpaði kandídata við brautskráninguna.

„Nánast í viku hverri erum við minnt á ávinninginn sem samfélagið hefur af nýsköpunar- og frumkvöðlastarfi,“ sagði Jón Atli Benediktsson og benti í því sambandi á hátæknifyrirtækið Marel sem varð til þegar frumkvöðlar við Háskóla Íslands lögðu krafta sína saman við framsýna aðila í sjávarútvegi. 

„Hjá Marel starfa nú um sex þúsund manns í 30 löndum við að þjónusta viðskiptavini í 180 ríkjum,” sagði Háskólarektor. „Markaðsvirði fyrirtækisins er nú um 420 milljarðar króna. Vart þarf að taka fram að fyrirtæki á borð við Marel skapa gríðarlega fjölbreytt tækifæri fyrir háskólamenntaða einstaklinga úr ólíkum greinum.“ 

Jón Atli sagði það miklu skipta fyrir okkur öll að byggja hér upp þróttmikið umhverfi þar sem frumkvöðlar Háskólans og aðilar úr atvinnulífinu fái tækifæri til að hagnýta hugvitið öllum til hagsbóta eins og gerst hefði í tilviki Marel. Alþjóðlegar mælingar virtra matsstofnana sýni ótvírætt að Háskóli Íslands sé í allra fremstu röð alþjóðlega hvað varðar samstarf við atvinnulíf og áhrif á samfélagið. 

„Þetta eru ávextir stefnumörkunar Háskóla Íslands til skemmri og lengri tíma. Hagur Háskólans er þjóðarhagur,“ sagði Jón Atli og vitnaði í orð Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta, um að „þekkingin skapi orðspor þjóðanna.“

Jón Atli beindi því loks til kandídata að hafa í huga mikilvægi menntahugsjónarinnar sem feli í sér að leita sannleikans sannleikans vegna og þroskans þroskans vegna. „Þar skipta jafnrétti og virðing fyrir öðru fólki, samfélaginu og náttúrunni miklu máli, en ekki síður barátta fyrir tjáningarfrelsi. Til að standa undir nafni verða háskólar að skapa andrúmsloft sem hvetur til gagnrýninnar og opinnar umræðu, þar sem fólk er óhrætt við að láta skoðanir sínar í ljós, jafnvel þegar þær eru óvinsælar eða fara á móti straumnum,“ sagði Jón Atli Benediktsson.

Háskólarektor hvatti í lokin kandídatana til að hagnýta sér þá þekkingu sem þeir hefðu öðlast í námi sínu við Háskóla Íslands til að láta gott af sér leiða í þágu samfélags, lífríkis og umhverfis.

„Áskoranir blasa við hvert sem litið er, í loftslagsmálum, þróun lýðræðis, upplýsingamengun og misskiptingu auðs og valda. Þetta er sá veruleiki sem þið takið við af okkur,“ sagði Jón Atli og hélt svo áfram. „Ég vona svo sannarlega að úrlausnarefni samtímans virki starfsorku ykkar og baráttugleði fremur en að ala á deyfð og vonleysi. „Mannshöfuð er nokkuð þungt,“ kvað skáldið Sigfús Daðason og bætti við „en samt skulum við standa uppréttir.“ Með þekkinguna að vopni eruð þið sannarlega reiðubúin að mæta lífinu upprétt í öllum sínum fjölbreytileika bæði ein og í samvinnu við aðra.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert