Fáar sólskinsstundir á næstunni

Veðrið hefur leikið við borgarbúa það sem af er sumri …
Veðrið hefur leikið við borgarbúa það sem af er sumri en nú er útlit fyrir að færri sólarstundir safnist í sarpinn næstu daga. Útlitið er þó mun sólríkara á Norðaustur- og Austurlandi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í dag er spáð fremur hægri suðvestanátt, að mestu skýjuðu og þurru. Hiti verður á bilinu 9 til 15 stig, en víða bjartviðri austan til á landinu og hiti að 22 stigum.

Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands að tæplega safnist margar sólskinsstundir í sarpinn næstu daga, en þrátt fyrir þungbúið veður er uppsafnaða úrkomumagnið heldur ekki mikið. Annað er þó upp á teningnum austan til á landinu þar sem er útlit fyir þurrt, bjart og hlýtt veður.

Fer ekki að rigna að ráði fyrr en á föstudag

Áfram er spáð suðvestanátt næstu daga með svipuðum hita og svipuðu skýjafari, en bætir heldur í vind á morgun með dálítilli vætu um vestanvert landið.

Ekki er þó útlit fyrir neina úrkomu að ráði á Vesturlandi fyrr en á föstudag. Enn er mjög þurrt á svæðinu og því er brýnt að fara varlega með eld á svæðinu.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag og miðvikudag:

Vestan 8-15 m/s, en hægari vindur austast á landinu. Dálítil væta af og til vestan til á landinu, en léttskýjað á austurhelmingi landsins. Hiti 8 til 22 stig, svalast vestast en hlýjast á Suðausturlandi.

Á fimmtudag:

Suðvestan 5-10 m/s og dálítli rigning, en áfram þurrt og bjart austan til á landinu. Hiti 10 til 21 stig, hlýjast austan til.

Á föstudag:

Sunnan 5-10 og víða rigning, en úrkomulítið norðaustan til. Hiti 10 til 16 stig.

Á laugardag:

Útlit fyrir austlæga átt og dálitla vætu um land allt. Hiti 11 til 16 stig.

Á sunnudag:

Líkur á norðlægri átt og rigningu norðan til en skúrum syðra. Kólnar í veðri.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert