Kastaðist sjö metra af mótorhjóli

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum að ökumaður …
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum að ökumaður mótorhjólsins missti stjórn á hjólinu með þeim afleiðingum að það lenti utan vegar. mbl.is/Arnþór Birkisson

Rúmlega fertugur karlmaður var fluttur á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi um helgina eftir  mótorhjólaslys.

Maðurinn var á ferð á Nesvegi ásamt félögum sínum þegar óhappið varð. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum að ökumaður mótorhjólsins missti stjórn á hjólinu með þeim afleiðingum að það lenti utan vegar. Maðurinn hentist fram af því og flaug eina sjö metra. Meiðsl hans voru minni en óttast hafði verið í fyrstu. Allir mennirnir voru með hjálma og hlífðarbúnað.

Fleiri umferðaróhöpp hafa verið skráð hjá lögreglunni á Suðurnesjum á undanförnum dögum en engin alvarleg slys á fólki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert