Jakob í þriðja sæti eftir forkeppni

Jakob Svavar Sigurðsson og Júlía frá Hamarsey.
Jakob Svavar Sigurðsson og Júlía frá Hamarsey. Ljósmynd/Aðsend

Jakob Svavar Sigurðsson og Júlía frá Hamarsey eru í þriðja sæti að lokinni forkeppni í slaktaumatölti sem fram fór í dag á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Berlín. Efst er Julia Christiansen og Stormur frá Hemlu og Stefan Schenzen og Óskadís vom Habichtswald eru í öðru sæti.

Ásmundur Ernir Snorrason og Frægur frá strandarhöfði höfnuðu í ellefta sæti í flokki fullorðinna og Máni Hilmarsson og Lísbet frá Borgarnesi í 23. sæti og hafa þar með lokið þátttöku á mótinu.

Í flokki ungmenna kepptu Hákon Dan Ólafsson og Stirnir frá Skriðu fyrir hönd Íslands og höfnuðu í sjöunda sæti og b-úrslitum sem verða reiðin að morgni föstudags. A-úrslit fara fram á sunnudag.

Ásmundur Ernir Snorrason og Frægur frá Strandarhöfði.
Ásmundur Ernir Snorrason og Frægur frá Strandarhöfði. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert