CLN-máli áfrýjað til Landréttar

Hreiðar Már Sig­urðsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaupþings, Sig­urður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­formaður …
Hreiðar Már Sig­urðsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaupþings, Sig­urður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­formaður Kaupþings, og Magnús Guðmunds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaupþings í Lúx­em­borg eru sakborningar í málinu, sem nú mun verða tekið fyrir í Landsrétti. mbl.is

Embætti ríkissaksóknara hefur áfrýjað CLN-málinu svokallaða, sem einnig hefur verið kallað Chesterfield-málið, til Landsréttar. Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari staðfestir þetta í samtali við mbl.is.

Sakborningar í málinu eru Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi lykilstjórnendur hjá Kaupþingi. Þeir voru allir sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur í júlí. Kjarninn greindi fyrst frá því í morgun að málinu hefði verið áfrýjað, en um er að ræða mál sem hefur farið fram og aftur í dómskerfinu undanfarin ár.

CLN-málið er eitt af svo­kölluðum hrun­mál­um, en í því voru áðurnefndir stjórn­end­ur Kaupþings ákærðir fyr­ir umboðssvik með því að hafa lánað 508 millj­ón­ir evra frá ág­úst til októ­ber 2008 til tveggja fé­laga sem keyptu láns­hæfistengd skulda­bréf af Deutsche Bank sem tengd voru skulda­trygg­inga­álagi Kaupþings. Sagði sak­sókn­ari að mark­miðið hefði verið að lækka skulda­trygg­inga­álag bank­ans.

Fyrsti dómur héraðsdóms í málinu var kveðinn upp árið 2016 og voru þremenningarnir sýknaðir þar. Síðan átti málið að fara til Hæstaréttar en áður en dómstóllinn náði að taka málið fyrir komu fram nýjar upplýsingar um greiðslur Deutsche Bank til þrotabús Kaupþings sem námu stórum hluta þeirrar fjárhæðar sem talin var hafa glatast.

Ógilti því Hæstirétt­ur fyrri dóm og sendi aftur í hérað, en héraðsdóm­ur vísaði mál­inu frá. Lands­rétt­ur taldi hins veg­ar að héraðsdóm­ur skyldi taka málið efnislega fyrir og niðurstaðan var sú að þremenningarnir væru sýknir saka. Þeirri niðurstöðu mun embætti ríkissaksóknara þó ekki una og þetta mál mun koma til kasta Landsréttar, sem áður segir.

Íslenska ríkið hef­ur þurft að greiða á sjötta tug millj­óna í máls­kostnað frá ár­inu 2016 þegar fyrsti dóm­ur héraðsdóms var kveðinn upp í mál­inu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert