Jón Gunnarsson í framboði til embættis ritara

Jón Gunnarsson (til hægri) kemur út af þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins í …
Jón Gunnarsson (til hægri) kemur út af þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í vikunni þar sem tilkynnt var að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir yrði nýr dómsmálaráðherra. mbl.is/Hari

Á fundi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi í morgun tilkynnti Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins að hann myndi sækjast eftir embætti ritara flokksins á flokkráðsfundi sjálfstæðismanna 14. september.

Á vikulegum fundi félags sjálfstæðismanna í Kópavogi fór bæjarstjórinn Ármann Kr. Ólafsson yfir framtíðarhorfur í bæjarmálunum og hálfsársuppgjör sveitarfélagsins.

Í lok fundar tók Jón til máls og lýsti yfir áformum sínum um að bjóða sig fram í embætti ritara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert