Fimm hvolpa mamma á Krít

Baddý og José reyna að stilla sér upp á mynd …
Baddý og José reyna að stilla sér upp á mynd með hvolpunum fimm. Þeir fundust við hraðbraut á Krít og Baddý hyggst flytja þá alla til Íslands fyrir jól. Ljósmynd/José Vásquez

Tveggja mánaða sjálfskipað listamannafrí hjá Bjarneyju Hinriksdóttur, kölluð Baddý, breyttist snarlega þegar fimm litlir hvolpar fengu hjá henni heimili í borginni Chania á eyjunni Krít. Baddý, sem er grafískur hönnuður og jóga- og núvitundarkennari, hugðist breyta til og sinna listinni á þessari fallegu grísku eyju. Blaðamaður sló á þráðinn til að heyra þessa hugljúfu en jafnframt óvenjulegu hundasögu.

Fundust við hraðbraut

Þegar Baddý hafði verið í viku á Krít var hún stödd með Silke, þýskri dýraverndunarkonu, þegar síminn hringir. „Það kom símtal frá yndislegu túristapari, Nuki og Yiad, sem höfðu fundið fimm hvolpa. Þeir höfðu verið skildir eftir við hraðbraut og parið tók þá inn á hótelherbergið sitt. Svo þurftu þau að fara heim og hringdu því í Silke. Hvolparnir voru þá um fimm vikna gamlir og alls ekki illa haldnir,“ segir hún. „Líklega hafa þeir bara verið einn dag á götunni. En það er algengt að fólk losi sig við dýr á þennan hátt en hér eru dýrin ekki gelt og því verður offjölgun.“

Baddý segir parið sem fann hvolpana hafa nefnt þá eftir …
Baddý segir parið sem fann hvolpana hafa nefnt þá eftir fallegum grískum stöðum eða borgum og heita þeir Kissi, Balos, Chania, Kala og Funi. „Þeir lærðu nöfnin sína alveg á fyrstu vikunum. Ég kalla þá The Fabulous Five.“ Ljósmynd/José Vásquez

Nú voru góð ráð dýr og ákvað Baddý að taka hvolpana heim til sín.
„Það var þá sem öll mín plön breyttust,“ segir hún og skellihlær.
„Þá tók við að ormahreinsa þá og byrja að ala þá upp. Ég þurfti að lesa mér til um hvernig á að ala upp hunda,“ segir Baddý sem aldrei áður hafði átt hund, hvað þá fimm.
„Þeir eru labrador-blendingar og rosalega sætir. Þrír hvítir og tveir svartir og hver með sinn karakter.“

Langar að halda þeim öllum

Baddý segir uppeldið ganga vel. „Þessir hundar eru klárir, ljúfir og góðir. Þetta er rosa mikil vinna og mikill kostnaður en það gefur mér ofsalega mikið. Ég er í raun ánægð að ég vissi ekki út í hvað ég væri að fara, það er hversu mikil vinna þetta væri. Ég er mikið að lesa bækur og skoða kennsluvídeó en þetta eru allt leiðbeiningar hvernig á að ala upp einn hund. Það er dálítið annað þegar þú ert með fimm,“ segir hún og hlær.
„Ég þarf bara að passa að halda geðheilsunni.“
Baddý segir parið sem fann hvolpana hafa nefnt þá eftir fallegum grískum stöðum eða borgum og heita þeir Kissi, Balos, Chania, Kala og Funi. „Þeir lærðu nöfnin sína alveg á fyrstu vikunum. Ég kalla þá The Fabulous Five,“ segir Baddý.

Hvolparnir hafa stækkað ansi mikið síðan Baddý fann þá 1. …
Hvolparnir hafa stækkað ansi mikið síðan Baddý fann þá 1. júlí. Ljósmynd/Baddý

Varstu búin að ákveða í byrjun hvað þú ætlaðir að gera við þá?


„Það hafa komið dagar sem ég hugsa alvarlega um að halda þeim öllum. En það er önnur saga,“ segir hún og hlær. „En fyrst var ég bara að hugsa um að bjarga þeim og svo að finna góðar fjölskyldur. Svo ákvað ég að ég vildi ekki að þeir yrðu áfram á Grikklandi því það er að mörgu leyti ekki góður staður fyrir dýr. Ég hef fengið mikinn stuðning í þessu verkefni frá vinum og vandamönnum heima, og nokkrir vinir eru áhugasamir um að taka að sér einn,“ segir Baddý sem hyggst koma með þá heim til Íslands.

„Þeir verða að vera orðnir sjö mánaða gamlir til að mega að koma inn í landið og verð ég því að bíða. Ég stefni á flytja þá heim fyrir jól,“ segir hún.

Vinn þegar þeir sofa

Kostnaður við að flytja hundana fimm til Íslands mun koma til með að vera tæpar tvær milljónir. Inni í þeirri tölu er ferðakostnaður, sérstök búr, einangrun, öll umsóknargjöld og sprautur.
„Ég er að setja af stað söfnun á Karolina Fund og þar mun fólk geta valið um að gefa ýmsar upphæðir. Í staðinn fær fólk listaverk en ég er með listamenn sem ætla að gefa vinnuna sína. Svo mun ég leggja til jógakort á lægra verði en þau kosta,“ segir Baddý, en þess má geta að hún rekur Reykjavík Yoga.

Þessi er ægilegt krútt eins og systkini hans.
Þessi er ægilegt krútt eins og systkini hans. Ljósmynd/José Vásquez

„Svo erum við að setja í loftið vefsíðu þar sem fólk getur skoðað hvolpana. Þá getur fólk lesið um hvern og einn hvolp og mögulega finnst einhver sem vill taka einn að sér,“ segir Baddý og bendir á að fólk getur nálgast allar upplýsingar um verkefnið og hvolpana hér og styrkt verkefnið á Karolina Fund undir: The Fabulous Five to Iceland.

Við förum að slá botninn í símtalið yfir hafið en blaðamaður spyr að lokum hvort hún nái að vinna eitthvað í listinni, orðin „fimmburamamma“.
Hún hlær. „Ég vinn þegar þeir sofa.“

Ítarlegt viðtal við Baddý er í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 




Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert