Éljagangur á norðanverðu landinu

Það verður vetrarlegt norðan heiða í dag.
Það verður vetrarlegt norðan heiða í dag. mbl.is/Þorgeir

Ferðalangar geta búist við éljum á norðanverðu landinu með takmörkuðu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum í dag. Það verður frost um allt land, 0 til 5 gráður, hlýjast á höfuðborgarsvæðinu.

Norðaustan 8-15 en 10-18 síðdegis, hvassast norðvestan til í dag en suðaustanlands á morgun.

Él á norðanverðu landinu og lengst af bjartviðri sunnan- og vestanlands, en stöku él syðst á landinu fram að hádegi.

Kólnar heldur á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert