Lögreglan óskar að ná tali af manni

Lögreglan leitar mannsins á myndinni.
Lögreglan leitar mannsins á myndinni. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Í tilkynningu frá lögreglunni er maðurinn beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík, eða í síma lögreglunnar 444-1000.

Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert