HR með íþróttafræðikennslu í Eyjum

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri, Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra og Hafrún Kristjánsdóttir frá …
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri, Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra og Hafrún Kristjánsdóttir frá HR skrifuðu undir samninginn í gær. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Skrifað var undir samning í gær um nám í íþróttafræði á háskólastigi við Háskólann í Reykjavík, sem kennt verður í Vestmannaeyjum. Náminu er ætlað að nýtast sem grunnur að áframhaldandi námi í íþróttafræði.

Samningurinn nær til næstu tveggja skólaára og verkefninu er ætlað að efla háskólanám á landsbyggðinni, að því er segir á vef Vestmannaeyjabæjar.

Fyrsta skólaárið verða sex námskeið haldin í fjarkennslu í gegnum fjarfundabúnað í Þekkingarsetri Vestmannaeyja. Auk þess munu kennarar koma til Eyja tvisvar á önn til að vinna með nemendum. Tvö verkleg námskeið verða haldin í Vestmannaeyjum. Nemendur munu sækja tvö þriggja vikna námskeið í Reykjavík en taka öll skrifleg próf í Þekkingarsetri Vestmannaeyja, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert