Samansúrrað samráð og samskipti

Sigurgeir B. Kristgeirsson.
Sigurgeir B. Kristgeirsson. Óskar Pétur Friðriksson.

Gögn sem birst hafa undanfarna daga staðfesta grun um samansúrrað samráð og samskipti Kastljóss RÚV og Seðlabanka Íslands í aðdraganda innrásar í höfuðstöðvar Samherja og við gerð makalausra Kastljósþátta í lok mars og byrjun apríl 2012.

Þetta skrifar Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar hf, í aðsendri grein sinni í Morgunblaðinu í dag. Þar skrifar Sigurgeir að í Kastljósþættinum hefðu birst rakalausar og ósannar fullyrðingar um lögbrot Samherja og Vinnslustöðvarinnar og dylgjað var um íslenskan sjávarútveg yfirleitt.

Grein Sigurgeirs:

Í Kastljósþætti 2. apríl 2012 fékk ég tækifæri til að bera af Vinnslustöðinni sakir og sagði síðan:

„Þetta vekur mér spurningar um vinnubrögð Kastljóss. Það vekur mér líka spurningar um tímasetningu Kastljóss. Samherji daginn áður, strax í framlagningu fiskveiðistjórnarfrumvarpsins. Við daginn eftir... Það sem er óhreint og stendur eftir er aðdragandinn og rannsókn á aðdraganda umfjöllunar Kastljóss og tímasetningin í tengslum við framlagningu fiskveiðistjórnarfrumvarpsins.

Af þessu tilefni leyfi ég mér að leggja fyrir Helga Seljan og Sigmar Guðmundsson, ábyrgðarmenn umfjöllunar Kastljóss, einfalda spurningu: Standið þið enn við yfirlýsingu sem þið birtuð á sínum tíma og hljóðaði svo: „Vegna orða framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar vill Kastljós taka fram að þátturinn stendur í einu og öllu við umfjöllun sína“?

Nú kemur nefnilega á daginn að tölvupóstar gengu linnulítið milli gjaldeyriseftirlits Seðlabankans og RÚV. Póstur var til dæmis sendur frá RÚV daginn fyrir innrásina í Samherja og með honum uppkast að frétt um væntanlegar aðgerðir – til birtingar að aðgerðum loknum!

Vinnslustöðin tekin fyrir sem dæmi um samsæri

Í Kastljósseríunni var Vinnslustöðin tekin fyrir sem dæmi um samsæri íslenskra útvegsmanna gegn íslensku samfélagi.

Samvinna Kastljóss RÚV og Seðlabankans leiddi til rannsóknar bankans á tiltekinni starfsemi Vinnslustöðvarinnar, án vitneskju fyrirtækisins. Seðlabankinn kærði Vinnslustöðina í framhaldinu til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, sem fór yfir málið og fann ekkert athugavert. Þá loksins lagði Seðlabankinn niður skottið og afturkallaði kæruna.

Höfðu réttarstöðu grunaðra án þess að vita það

Í þessu ferli höfðu stjórnarmenn og framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar réttarstöðu grunaðra í þrjú ár án þess að hafa hugmynd um það sjálfir! Á sama tíma veitti Vinnslustöðin gjaldeyriseftirliti Seðlabankans allar upplýsingar um viðskiptafærslur og annað sem óskað var eftir. „Glæpurinn“ fannst aldrei, enda ekki til nema sem hugarfóstur Kastljóss og gjaldeyriseftirlitsins sjálfs.

Vinnslustöðin fékk ekki staðfesta vitneskju um það fyrr en löngu síðar að Seðlabankinn hefði allan tímann leikið tveimur skjöldum gagnvart fyrirtækinu.

Atburðarásin sem hér er lýst er hvorki atriði úr bíómynd né skálduð lýsing á stjórnarháttum í einhverju bananalýðveldi sem Íslendingar kenna sig helst ekki við. Þetta er birtingarmynd samsæris og spillingar með sjálft Ríkisútvarpið og sjálfan Seðlabankann í aðalhlutverkum, væntanlega með vitneskju og velþóknun forystumanna ríkisstjórnar landsins á sínum tíma.

Í Kastljósseríunni var Vinnslustöðin tekin fyrir sem dæmi um samsæri …
Í Kastljósseríunni var Vinnslustöðin tekin fyrir sem dæmi um samsæri íslenskra útvegsmanna gegn íslensku samfélagi, skrifar Sigurgeir í aðsendri grein sinni í Morgunblaðinu í dag. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Sérlega áhugavert er að formaður Blaðamannafélagsins skuli nú veita framferði Kastljóss heilbrigðisvottorð sem nauðsynlegu „aðhaldshlutverki“ og „heimildarvernd“ til að sinna skyldum sínum sem fjölmiðli í lýðræðissamfélagi. Helgar þá tilgangurinn meðalið? Hvernig gagnast það lýðræði að Kastljós beri á borð dylgjur og ósannindi um lögbrot fyrirtækja og láti þar við sitja?

Kastljós RÚV fór með falsfréttir og stærði sig meira að segja af því að vera gerandi í „rannsókn“ á meintum lögbrotum. Ekkert stendur nú eftir nema skömm RÚV og Seðlabankans. Kastljós hefur enga tilburði sýnt til að segja frá því sem sannara reyndist og því síður biðjast velvirðingar á vinnubrögðum sínum.

Við getum þrátt fyrir allt prísað okkur sæl yfir því að lögregla og dómstólar stóðu í lappirnar. Þökk sé líka forsætisráðherra og nýjum seðlabankastjóra fyrir að láta ekki fyrri seðlabankastjóra komast upp með að leyna upplýsingum um skandalinn. Sérstaklega ber að þakka að jafnframt því sem forsætisráðherra vísaði málinu til lögreglu voru opinberuð skjöl sem staðfesta sameiginlega og grófa misbeitingu valds í Efstaleiti og við Kalkofnsveg.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert