Eve Online á kóresku

Eve Online kemur út á kóresku á fimmtudaginn.
Eve Online kemur út á kóresku á fimmtudaginn. Ljósmynd/Aðsend

Tölvuleikur CCP, EVE Online, kemur út á kóresku síðar í þessari viku. Með útgáfunni opnast einn stærsti og þróaðasti tölvuleikjamarkaður heims fyrir CCP og EVE Online.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Í tilefni útgáfu EVE Online á kóresku verður Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, einn aðalræðumanna  G-Star ráðstefnunnar í Busan, Suður-Kóreu. Kóresk útgáfa EVE Online kemur út sama dag og ráðstefnan hefst, fimmtudaginn 14. nóvember, og munu rúmlega tvö hundruð þúsund gestir hennar þar fá tækifæri til að prófa og keppa í EVE Online.

Með kóreskri útgáfu EVE Online fá EVE spilarar í Japan, Ástralíu og Nýja-Sjálandi fleiri leikmenn til liðs við leikinn á sínu tímabelti í Asíu og Kyrrahafi, en löndin hafa í dag á að skipa samfélagi öflugra EVE-spilara sem oft eiga erfitt með að spila við fólk annars staðar í heiminum á hentugum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert