Verðlaun og glóandi orðalistaverk

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. mbl.is/Hari

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhendir
verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og viðurkenningu dags íslenskrar tungu, á hátíð í Gamla bíói á degi íslenskrar tungu síðdegis.

Húsið verður opnað kl. 15.00 – dagskrá hefst 15.30 og lýkur um kl. 16.30. 

„Fram koma: Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Jakob Birgisson, Hundur í óskilum, Vilhelm Netó, GDRN, Auður og fulltrúi Radda, lesari úr Stóru upplestrarkeppninni.

Frumsýnt verður myndbandsverkið Mósaík íslenskunnar, þar sem 80 mælendur bera fram sjaldséð íslensk orð og í anddyri Gamla bíós verða gagnvirka sýningin Óravíddir orðaforðans og Eldfjallasjá Veðurstofu Íslands sem varpar ljósi á framlag náttúruskáldsins Jónasar Hallgrímssonar til vísindanna. Sönghópur frá Listaháskóla Íslands stýrir fjöldasöng og veggir verða skreyttir túlkun grunnskólabarna á skemmtilegum íslenskum orðum. Kl. 17.00 birtist síðan í myrkrinu glóandi orðalistaverk á glerhjúpi Hörpu í tilefni dagsins,“ segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert