47 milljarðar í arf í fyrra

mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Einstaklingar erfðu samtals tæplega 47 milljarða króna á síðasta ári samkvæmt skattframtölum fyrir árið 2018. Alls töldu 5.552 framteljendur fram arf á árinu vegna tekna á síðasta ári. Af þessari fjárhæð renna tæplega 4,5 milljarðar til ríkisins í erfðafjárskatt.

Þessar upplýsingar fengust hjá embætti Ríkisskattstjóra. Upphæð fengins arfs hækkaði á milli ára en til samanburðar þá töldu 5.367 framteljendur fram arf í fyrra sem þeir fengu á árinu 2017, samtals rúmlega 38,4 milljarða á verðlagi þess árs.

Á fimm ára tímabili, þ.e.a.s. á árunum 2014 til 2018, fengu landsmenn samanlagt tæplega 165 milljarða kr. í arf að því er fram kemur í skattframtölum og voru erfingjar á þessu tímabili um 24.350 talsins. Tekjur ríkisins af erfðafjárskatti á þessum árum voru rúmir 15,8 milljarðar.

Á síðasta ári létu 1.604 eftir sig arf. Fjöldi þeirra sem telja fram arf hefur sveiflast í gegnum árin. Á síðustu 14 árum náði fjöldi þeirra hámarki 2010 þegar 6.611 töldu fram arf. Þeir voru 3.550 ári síðar en síðan þá hefur erfingjum fjölgað ár frá ári, að því er fram kemur í umfjöllun um erfðafjárskattinn í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert