Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-EIR, var að ljúka við að hífa alla fjóra bátsverja af Lágey ÞH-265 upp í þyrluna. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins eru að undirbúa björgun bátsins af strandstað.
Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hafði áhöfn línubátsins Lágey ÞH-265 samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar klukkan 4:30 í nótt á fjarskiptarásinni VHF-16 og tilkynnti að bátinn hefði rekið í strand í vestanverðum Þistilfirði, um miðja vegu á milli Þórshafnar og Raufarhafnar.
Lágey er 15 tonna og 13 metra langur yfirbyggður trefjaplastbátur. Veður er tiltölulega gott á strandstað, logn og gott skyggni en svolítil hafalda.