Slaki á hótelmarkaðnum

Verð á gistingu í Reykjavík hefur farið lækkandi og nýting …
Verð á gistingu í Reykjavík hefur farið lækkandi og nýting hótelherbergja er lakari en áður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir útlit fyrir áframhaldandi slaka á hótelmarkaði. Því sé ekki útlit fyrir að byggja þurfi fleiri herbergi til að anna eftirspurn.

„Við vitum um hótelverkefni sem var frestað í fyrra. Það getur aftur þýtt að fleiri verkefni frestast þar til slakinn fer að hverfa.“

Tilefnið er greining Landsbankans sem leiðir í ljós að verð á gistingu mælt í evrum í Reykjavík hefur lækkað 16 mánuði í röð. Meðalverðið í fyrra var 140,1 evra en 160 evrur árið 2018. Að auki hefur rekstrarkostnaðurinn aukist.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag bendir Gústaf Steingrímsson, sérfræðingur hjá Landsbankanum, á að undanfarin ár hafi laun á Íslandi hækkað meira en í flestum löndum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert