Parið varð úti í óveðri

Tvö lík, af karli og konu, fundust á Sólheimasandi í …
Tvö lík, af karli og konu, fundust á Sólheimasandi í síðustu viku. Kort/mbl.is

Lögreglan á Suðurlandi segir að bráðabirgðaniðurstaða krufningar á líkum tveggja kínverskra ferðamanna, karlmanns sem fæddur var 1997 og konu sem fædd var 1999, sem fundust á Sólheimasandi 16. janúar, bendi til þess að fólkið hafi orðið úti í óveðri sem gekk yfir dagana þar á undan.

„Ekki eru merki um aðkomu utanaðkomandi aðila og ekki er grunur um að saknæmt athæfi hafi átt sér stað. Áfram verður unnið úr þeim gögnum sem aflað hefur verið til að varpa frekara ljósi á ferðir þeirra á þessum slóðum,“ segir í tilkynningu frá lögreglu. 

Tekið er fram, að endanleg niðurstaða krufningar muni liggja fyrir að einhverjum vikum liðnum.

Þá segir lögreglan, að aðstandendur fólksins hafi komið til landsins á sunnudag og fundaði lögregla með þeim og fulltrúum kínverska sendiráðsins á mánudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert