Falsaðir evruseðlar í umferð

Einn af 100 evru seðlunum sem notaðir voru.
Einn af 100 evru seðlunum sem notaðir voru. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að um helgina hafi svindlurum tekist að koma nokkru af evruseðlum í umferð. Aðferðin sem þeir beittu var að greiða fyrir ódýrar vörur eða þjónustu með 100 og 200 evru seðlum. Þeir herjuðu einna helst á sólarhringsverslanir, leiktækjasali og leigubíla. Þetta var hópur sem fór víða að sögn lögreglu. 

„Svindlararnir fóru stuttar ferðir með leigubílum eða keyptu sígarettur og smávörur en fengu svo afgang í íslenskum krónum. Þannig tókst þeim að verða sér úti um talsverða peninga.

Fljótt á litið eru þetta sambærilegir seðlar evrum. En þeir standast enga nánari skoðun ef menn vita að hverju á að leita. Svo virðist sem að svindlararnir hafi verið með búnt af fölskum seðlum sem hægt er að kaupa í Rússlandi,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni. 

Hún tekur fram að rannsókninni í þessu máli miði vel áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert