Kennsl borin á höfuðkúpu frá árinu 1994

í ljós kom að beinin voru af manni sem talinn …
í ljós kom að beinin voru af manni sem talinn er hafa fallið í Sogið árið 1987. mbl.is/Eggert

Nýverið tókst að bera kennsl á líkamsleifar manns sem fundust 3. október árið 1994 og höfðu verið í geymslu hjá lögreglunni frá þeim tíma. Ekki tókst að bera kennsl á líkamsleifarnar með þeirri tækni sem var til staðar þegar þær fundust, en ákveðið var að reyna aftur í lok mars á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Um er að ræða hluta af höfuðkúpu manns sem fannst á sandeyrum Ölfusáróss, norðan sk. Nauteyratanga. Á kúpuna vantaði neðri kjálkann og einungis ein tönn var í efri góm. Farið var með kúpuna til rannsóknar hjá kennslanefnd ríkislögreglustjóra og á hennar vegum gerðar þær skoðanir og mælingar sem unnt var m.v. tækni þess tíma. Ekki tókst hins vegar að finna út hverjum líkamsleifarnar tilheyrðu.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að á síðasta ári hafi verið ákveðið að reyna á ný og tekið hafi verið sýni úr kúpunni til aldursgreiningar.

Niðurstaða þeirrar rannsóknar barst í haust og í ljós kom að beinin voru að líkindum frá árunum um og eftir 1970. Þá var þess freistað að ná nothæfu DNA-sýni úr kúpunni og var það sent rannsóknarstofu í Svíþjóð til greiningar. Niðurstaða úr þeirri greiningu barst svo nú í janúar og þá kom í ljós að um var að ræða höfuðkúpu Jóns Ólafssonar sem fæddur var 8. júlí 1940 og er talinn hafa fallið í Sogið á aðfangadag 1987. Börnum Jóns hefur verið kynnt þessi niðurstaða og munu þau fá þessar jarðnesku leifar föður síns á allra næstu dögum.

Fram kemur að lögreglan á Suðurlandi hafi undanfarin ár tekið DNA-sýni úr aðstandendum þeirra sem taldir eru hafa horfið í umdæminu á liðnum árum og ekki fundist. Enn á eftir að fá sýni frá nokkrum einstaklingum og verður þeirri vinnu haldið áfram á þessu ári.  

Lögreglumönnum við þessa vinnu mun hafa verið vel tekið af þeim sem leitað hefur verið til. Sýnin eru geymd í gagnabanka þar sem unnt verður að bera þau saman við DNA-snið þeirra sem finnast, hvort sem það er í okkar tíð eða komandi kynslóða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert