Stormviðvaranir eftir hádegi

Kort/Veðurstofa Íslands

Vaxandi suðaustanátt í dag með rigningu, hvassviðri eða stormur sunnan- og vestanlands eftir hádegi og hafa verið gefnar út gular viðvarnir á Suðurlandi, við Faxaflóa, Breiðafjörð og á miðhálendinu.

Spáð er hægari vindi annars staðar og lengst af þurrt norðaustan til á landinu. Hiti 4 til 10 stig, hlýjast syðst. Lægir seint í kvöld, dregur úr úrkomu og kólnar.

„Fremur hæg suðlæg átt á morgun en strekkingur með vesturströndinni. Él eða slydduél og hiti um og yfir frostmarki en að mestu þurrt um norðanvert landið og víða vægt frost.
Áfram suðlæg átt á sunnudag og víða él, en snýst í norðanátt í byrjun næstu viku og léttir til um sunnanvert landið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Á Suðurlandi tekur gul viðvörun gildi klukkan 14 og gildir til klukkan 18.„Suðaustanhvassviðri eða -stormur, 15-23 m/s með vindhviðum staðbundið yfir 30 m/s, einkum undir Eyjafjöllum. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.“

Við Faxaflóa gildir gula viðvörunin frá klukkan 14:00 til 20:00. „Suðaustanhvassviðri eða -stormur, 15-23 m/s. Vindhviður geta farið yfir 30 m/s við fjöll. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.“

Við Breiðafjörð er gul viðvörun í gildi frá klukkan 14 til 21. „Suðaustanstormur, 18-23 m/s í vindstrengjum á Snæfellsnesi með vindhviðum 30-35 m/s. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.“
Á miðhálendinu skellur veðrið á fyrr og er gul viðvörun í gildi frá klukkan 9 og gildir hún til klukkan 23 í kvöld. „Suðaustan 20-30 m/s, hvassast í norður- og vesturhlíðum fjalla/jökla. Rigning, slydda, snjókoma. Ekkert ferðaveður.“

Veðurspá fyrir næstu daga

Vaxandi suðaustanátt og víða rigning, 15-23 á Suður- og Vesturlandi síðdegis. Suðaustan 8-15 norðanlands og þurrt að kalla. Hiti 5 til 10 stig. Lægir í nótt og kólnar. Sunnan 5-10 á morgun en 10-15 vestast á landinu. Él eða slydduél og hiti 0 til 4 stig, en úrkomulítið norðan til á landinu og víða vægt frost.

Á laugardag:

Sunnan og suðaustan 10-18 m/s, hvassast við vesturströndina. Slydduél eða él, en að mestu þurrt norðanlands. Hiti 0 til 4 stig, en vægt frost í innsveitum fyrir norðan.

Á sunnudag:
Suðaustan og austan 3-8 og él, en þurrt norðan til á landinu. Norðaustan 10-15 og dálítil snjókoma á Vestfjörðum um kvöldið. Frost 0 til 5 stig.

Á mánudag og þriðjudag:
Norðlæg átt, víða 5-10 m/s, og él eða snjókoma norðan- og austanlands. Yfirleitt úrkomulaust á sunnanveðru landinu, þó líkur á stöku éljum allra syðst. Frost um land allt.

Á miðvikudag:
Austan- og norðaustanátt og dálítil él, en úrkomulítið vestanlands. Kalt í veðri.

Á fimmtudag:
Austlæg átt, dálítil snjókoma og vægt frost, en þurrt um norðvanvert landið og talsvert frost.

Aðalleiðir eru mikið til auðar en sums staðar er hálka á fáfarnari vegum. Talsvert er um skemmdir vegna hlýinda og víða slæmar holur í bundnu slitlagi. Eins hefur víða þurft að takmarka ásþunga í því viðkvæma ástandi sem skapast þegar frost er að fara úr jörð, segir í færslu Vegagerðarinnar á Twitter í morgun.

Snjóþekja og éljagangur er á Steingrímsfjarðarheiði, aðrar leiðir eru að mestur greiðfærar, þó eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum á Vestfjörðum.

Veður á mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert