17 félög SGS samþykktu nýjan kjarasamning

Frá sjöunda þingi Starfsgreinasambands Íslands síðastliði haust.
Frá sjöunda þingi Starfsgreinasambands Íslands síðastliði haust. mbl.is/​Hari

Sautján aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands (SGS) samþykktu nýjan kjarasamning í atkvæðagreiðslu sem er nýlokið. Samningurinn var samþykktur með miklum meirihluta. 

Starfsgreinasambandið hélt utan um sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu meðal 16 félaga um nýjan samning, en AFL Starfsgreinafélag sá sjálft um sína atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðslan stóð yfir á tímabilinu 3. til 10. febrúar.

Í heildina var kjörsókn 32,83%. Já sögðu 80,55% en nei sögðu 16,33%. 3,12% tóku ekki afstöðu. Á kjörskrá voru 4.197 manns.

Samningurinn, sem undirritaður var 16. janúar síðastliðinn, er því samþykktur hjá eftirfarandi félögum:

  1. AFLi Starfsgreinafélagi
  2. Öldunni stéttarfélagi
  3. Bárunni stéttarfélagi
  4. Drífandi stéttarfélagi
  5. Einingu-Iðju
  6. Framsýn stéttarfélagi
  7. Stéttarfélagi Vesturlands
  8. Stéttarfélaginu Samstöðu
  9. Verkalýðsfélagi Grindavíkur
  10. Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur
  11. Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis
  12. Verkalýðsfélagi Snæfellinga
  13. Verkalýðsfélagi Suðurlands
  14. Verkalýðsfélagi Vestfirðinga
  15. Verkalýðsfélagi Þórshafnar
  16. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis
  17. Verkalýðsfélaginu Hlíf
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert