Í varðhaldi til föstudags ef ekkert breytist

Reykjanesbær.
Reykjanesbær.

Bandaríski karlmaðurinn sem er grunaður um kynferðisbrot gegn drengjum í nokkrum löndum, meðal annars hér á landi, mun sitja í gæsluvarðhaldi til næstkomandi föstudags ef ekkert breytist.

Þetta segir Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum. Það ræðst af því hvernig rannsókninni miðar hvort farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald.

Aðspurður segir hann rannsóknina talsvert umfangsmikla en getur ekki tjáð sig frekar um hana að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert