Konur sjá um rannsóknir í ralli

Við brottför í fyrrakvöld: Ragnhildur Magnúsdóttir, Sólrún Sigurgeirsdóttir, Agnes Eydal, …
Við brottför í fyrrakvöld: Ragnhildur Magnúsdóttir, Sólrún Sigurgeirsdóttir, Agnes Eydal, Kristín J. Valsdóttir, Eydís Njarðardóttir, Ingibjörg G. Jónsdóttir og Hrönn Egilsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í fyrsta skipti í 36 ára sögu togararalls Hafrannsóknastofnunar verður rannsóknarliðið um borð í rannsóknarskipinu Bjarna Sæmundssyni alfarið skipað konum.

Skipið lét úr höfn í fyrrakvöld í um þriggja vikna leiðangur og leiðangursstjóri um borð er Ingibjörg G. Jónsdóttir sjávarvistfræðingur.

Togararallið er einnig kallað marsrall, en formlegt heiti er stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum. Auk Bjarna Sæmundssonar taka rannsóknarskipið Árni Friðriksson og togararnir Gnúpur GK og Múlaberg SI þátt í verkefninu. Fimm til sjö rannsóknarmenn eru á hverju skipi auk áhafnar.

Hafsvæðinu við landið er skipt í fernt og verður Bjarni Sæmundsson einkum við rannsóknir við norðvestanvert landið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert