Þrír með veiruna sem komu heim frá Veróna í gær

Þrír úr fluginu greindust með kórónuveiruna.
Þrír úr fluginu greindust með kórónuveiruna. mbl.is/Íris

Fjöldi smitaðra af kórónuveirunni er orðinn 58. Þrjú ný smit greindust af þeim sýnum sem tekin voru af farþegum sem komu heim með flugi frá Veróna á Ítalíu í gær. Af öllum þessum smitum eru 10 innanlandssmit. 

Mikill viðbúnaður var í gær þegar flugvélin lenti á Keflavíkurflugvelli. Allir farþegarnir sem voru um 80 talsins fóru í heimasóttkví. Við komuna til landsins voru tekin sýni úr þeim einstaklingum sem óskuðu eftir því. 

Í samtali mbl.is við Rögnvald Ólafsson, verk­efna­stjóra al­manna­varna, við komu vélarinnar til landsins var ekki vitað til þess að nokk­ur farþeg­anna hafði ein­kenni COVID-19, sjúk­dóms­ins sem kór­ónu­veir­an veld­ur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert