Vann tvær milljónir í Jókernum

Það getur borgað sig að kippa Jókernum með.
Það getur borgað sig að kippa Jókernum með.

Enginn var með allar tölurnar réttar í lottóútdrætti kvöldsins og verður potturinn í næstu viku því fjórfaldur. Einn miðahafi var með bónusvinninginn og hlýtur hann rúmlega 490 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur í Lottó-appinu.

Einn heppinn áskrifandi að Lottó var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker í kvöld og hlýtur hann tvær milljónir króna í vinning.

Átta voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í Prinsinum, Hraunbæ í Reykjavík, N1, Ártúnshöfða í Reykjavík, Mini Market í Reykjanesbæ, á Lotto.is og fjórir miðar eru í áskrift.

Hér má sjá tölur kvöldsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert