Sex í einangrun á Austurlandi

Frá Egilsstöðum.
Frá Egilsstöðum. mbl.is/Arnar Þór

Eitt staðfest smit kórónuveiru greindist á Austurlandi í gær. Einstaklingar í einangrun eru nú sex talsins í fjórðungnum. Nokkuð af sýnum er til rannsóknar og niðurstöðu þeirra beðið.

Í sóttkví eru 212 manns og hefur fækkað um fjóra frá í gær.

Í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi segir að gera megi ráð fyrir að hluti flugfarþega sem komu til landsins fyrir um hálfum mánuði frá skilgreindum áhættusvæðum hafi lokið sínum fjórtán dögum sóttkvíar og það sé skýringin á fækkuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka