Ísey Skyr í um 50.000 verslanir í Japan í dag

Ísey Skyr er framleitt af Nippon Luna í Kyoto eftir …
Ísey Skyr er framleitt af Nippon Luna í Kyoto eftir uppskrift og framleiðsluaðferð MS. Íslenski skyr gerilinn er ennfremur lykilþáttur við framleiðslu vörunnar. Ljósmynd/Aðsend

Sala á Ísey Skyri hófst í dag í um 50.000 verslunum í Japan. Ísey Skyr verður selt í öllum helstu matvöruverslunum Japans, í verslunum 7-11, Family Mart, Lawson, Aeon, Itokyokado, Kinokuniya, Seijo-Ishi og fleirum. Alls eru þetta um 50.000 verslanir.

„Líklega er þetta ein víðtækasta dreifing sem um getur á íslenskri vöru í erlendri smásölu til þessa,“ segir í tilkynningu frá MS.

Þá segir, að þrátt fyrir að vera ein dýrasta mjólkurvara í Japan þá hafi „Ísey Skyr fengið frábæra uppstillingu eða staðsetningu í flestum þessara verslana. Ísey Skyri er stillt upp við hlið mest seldu mjólkurvara Japans sem sýnir að trú verslananna á Ísey Skyri er mikil. Viðbrögðin við vörunni hafa verið mjög góð og hefur varan nú þegar í dag klárast í mörgum þessara verslana, skv. samstarfsaðilum MS í Japan,“ segir ennfremur. 

Ísey Skyr hefur m.a. fengið umfjöllun í stærsta viðskiptadagblaði heims, …
Ísey Skyr hefur m.a. fengið umfjöllun í stærsta viðskiptadagblaði heims, Nikkei, sem á m.a. Financial Times, og umfjöllun í Yomiyuri (sjá hér að ofan), einu útbreiddasta dagblaðs Japans. Ljósmynd/Aðsend

 Það er dótturfyrirtæki MS, Ísey útflutningur ehf. sem annast þetta verkefni fyrir MS og hefur gert framleiðslu- og vörumerkjasamning við japanska aðila. Japönsku samstarfsaðilarnir eru mjólkurvörufyrirtækið Nippon Luna, sem er í eigu Nippon Ham, sem er eitt stærsta matvælafyrirtæki Japans og fjórði stærsti kjötframleiðandi heims, og japansk-íslenska fyrirtækið Takanawa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert