Samningar um íslenska hestinn undirritaðir á fjarfundi

Samningarnir voru undirritaðir við nokkuð sérstakar aðstæður að þessu sinni …
Samningarnir voru undirritaðir við nokkuð sérstakar aðstæður að þessu sinni eða í gegnum fjarfundabúnað þar sem allir staðfestu samninginn með undirritunum sínum. Hér má sjá Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, við undirritunina og á skjánum glittir í fulltrúa frá Félagi hrossabænda, Landssambandi hestamannafélaga, Félagi tamningamanna og Íslandsstofu. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað samning við Félag hrossabænda, Landssamband hestamannafélaga, Félag tamningamanna og Íslandsstofu um áframhald markaðsverkefnisins Horses of Iceland, til kynningar á íslenska hestinum. Við sama tilefni undirritaði ráðherra samning við Félag hrossabænda og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum um prófun á forvarnarbóluefni gegn sumarexemi í útfluttum hrossum.

Samningarnir voru undirritaðir við nokkuð sérstakar aðstæður að þessu sinni eða í gegnum fjarfundabúnað þar sem allir staðfestu samninginn með undirritunum sínum, að því er segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. 

Tilgangur markaðsverkefnisins Horses of Iceland er að byggja upp orðspor íslenska hestsins um heim allan til að leggja grunn að aukinni verðmætasköpun og útbreiðslu hestsins á heimsvísu. Um er að ræða samstarf aðila í hestatengdri starfsemi, sem aðilum um heim allan stendur til boða að gerast þátttakendur að. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Íslandsstofa gerðu með sér samning um verkefnið árið 2016 til fjögurra ára. Samningurinn rann út um áramót, en hefur nú verið framlengdur til 30. júní 2021. Ráðuneytið leggur að hámarki 19 milljónir króna til verkefnisins á umræddu tímabili þar sem fjárframlag sem því var ætlað hefur ekki verið fullnýtt síðustu ár. Þá leggja hagsmunaaðilar til sambærilegt mótframlag. 

Bólusetning gegn sumarexemi

Verkefnið felur í sér að hópur af hrossum verður bólusettur gegn sumarexemi með aðferð sem þróuð hefur verið á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Eftir bólusetninguna verða hestarnir fluttir á flugusvæði í Sviss til að athuga, við raunaðstæður, hvort bólusetningin ver þá gegn ofnæminu. Gerð verður samanburðarrannsókn á þekktu svæði í Bern í Sviss þar sem sumarexem hefur verið til mikilla óþæginda fyrir hross sem fædd eru á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert