5 milljarðar í breikkun Suðurlandsvegar

Frá undirrituninni.
Frá undirrituninni. mbl.is/Árni Sæberg

Vegagerðin og Íslenskir aðalverktakar undirrituðu verksamning um verkið Biskupstungnabraut - Hveragerði, 2. áfangi; Biskupstungnabraut  Gljúfurholtsá, í hádeginu fyrir utan húsnæði Vegagerðarinnar í Reykjavík.

Verksamningur hljóðar upp á 5.069 m.kr.

Við undirskrift var þess gætt að reglum um samkomubann og fjarlægðamörk væri fylgt.

Um er að ræða annan áfanga breikkunar Suðurlandsvegar á milli Hveragerðis og Selfoss. En ÍAV var einnig með fyrsta áfanga verksins.

Nánar um verkið:

Um er að ræða nýbyggingu hringvegar að hluta og breikkun og endurgerð að hluta, alls um 7,1 km. Gerð verða ný vegamót við Kirkjuferjuveg og Hvammsveg eystri ásamt nýju hringtorgi við Biskupstungnabraut. Lagður verður nýr tæplega 5 km Ölfusvegur með hjólareinum ásamt breytingu á Þórustaðavegi og Biskupstungnabraut.

Byggðar verða þrjár nýjar brýr á Gljúfurholtsá og Bakkárholtsá og undirgöng fyrir bíla við Þórustaði og við Kotströnd þar sem Ölfusvegur fer undir nýjan hringveg. Þá verða byggð tvenn sérstök undirgöng fyrir reiðleiðir og gönguleiðir.

Einnig eru breytingar á lögnum veitufyrirtækja innifalin í verkinu.

Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi með því að aðskilja akstursstefnur og fækka tengingum við hringveg ásamt því að auka umferðarrýmd vegakerfisins milli Hveragerðis og Selfoss.

Með framkvæmdinni verður jafnframt til nýr samfelldur hliðarvegur, Ölfusvegur, með sérstökum hjólareinum frá Hveragerði að Biskupstungnabraut.

Að loknum framkvæmdum verða einungis tvenn vegamót á kaflanum frá Biskupstungnabraut að Hveragerði. 

Áætlað upphaf framkvæmda er vorið 2020 og verklok eru haustið 2023.

Til að ljúka breikkun hringvegar og aðskilnaði akstursstefna frá Biskupstungnabraut að Kömbum er svo gert ráð fyrir að hringvegur verður færður til suðurs við Hveragerði í nýja veglínu samkvæmt aðalskipulagi Hveragerðisbæjar. Sú framkvæmd er í undirbúningi og gert er ráð fyrir henni á samgönguáætlun árið 2023.

Verkinu skal að fullu lokið 29. september 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert