Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn í dag 9. apríl klukkan 14. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi.
Gestir fundarins í dag verða Páll Matthíasson forstjóri Landspítala og Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða sem mætir á fundinn með í gegnum fjarfundarbúnað.