FF og FS skrifuðu undir kjarasamninga

Mynd úr kennslustofu.
Mynd úr kennslustofu. mbl.is/Hari

Félag framhaldsskólakennara (FF) og Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) skrifuðu síðdegis í dag undir samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi við ríkið. Skrifað var undir samninginn í húsnæði ríkissáttasemjara með fyrirvara um samþykki félagsmanna FF og FS.

Samningurinn verður kynntur félagsmönnum á næstu dögum og mega þeir vænta upplýsinga frá formönnum sínum um fyrirkomulag kynninga og atkvæðagreiðslu.

Gildistími hins nýja samnings er frá 1. apríl 2019 til 31. desember 2020. FF og FS hafa verið án samnings síðan í lok mars á síðasta ári en síðast var skrifað undir kjarasamning  21. apríl 2018, að því er kemur fram í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert