Katrín fékk skýrslu barnaþings afhenta

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekur við skýrslunni.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekur við skýrslunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skýrsla barnaþings 2019 var afhent Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra fyrir utan ráðherrabústaðinn að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. 

Eitt helsta markmið fyrsta barnaþingsins sem haldið var í Hörpu 21. – 22. nóvember í fyrra, var að skapa vettvang sem væri á forsendum barnanna sjálfra þar sem þau fengju að ráða þeim málefnum sem til umfjöllunar væru á þinginu hverju sinni, að því er segir í tilkynningu.

Barnaþingið verður framvegis haldið annað hvert ár og er þannig ætlað að veita börnum reglubundinn vettvang til þess að láta í ljós skoðanir sínar á málefnum sem þeim finnst skipta mestu máli hverju sinni.

Í skýrslunni sem var afhent í dag birtast helstu niðurstöður barnaþingsins og eru þær hugmyndir sem komu fram á þinginu flokkaðar eftir málefnum. Hugðarefni barnanna eru afar fjölbreytt og komu fram ýmsar skoðanir þeirra um framvindu samfélagsins og alþjóðamálefni.

„Ég vil þakka barnaþingmönnum sérstaklega fyrir góða og virka þátttöku. Þeir hafa sýnt, svo um munar, fram á mikilvægi þess að börn séu virkir þátttakendur í samfélagsumræðu. Barnaþingmenn unnu í sameiningu að því að finna nýjar leiðir og lausnir á fjölbreyttum viðfangsefnum með áherslu á samvinnu, jafnrétti og samfélagslega ábyrgð“ segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert