Efling og SÍS semja – verkfalli aflýst

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri fyrir aftan.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri fyrir aftan. mbl.is/Kristinn Magnússon

Efl­ing  stétt­ar­fé­lag og samn­inga­nefnd­ Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga und­ir­rituðu kjarasamn­ing rétt fyrir miðnætti eftir maraþonfund í húsakynnum ríkissáttasemjara í dag. 

Ótímabundnu verkfalli, sem staðið hefur yfir frá því á þriðjudag, hefur því verið aflýst og félagsmenn Eflingar hjá Kópa­vogi, Seltjarn­ar­nesi, Ölfusi og Mos­fells­bæ snúa aftur til vinnu í fyrramálið.

Í tilkynningu frá Eflingu segir að kveðið sé á um hækkun lægstu launa með sérstakri aukagreiðslu að fyrirmynd kjarasamnings Eflingar við Reykjavíkurborg. Efling fagni því sigri í langvinnri og erfiðri kjarabaráttu við Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd félagsmanna sem starfa hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Sveitarfélaginu Ölfusi og Hveragerðisbæ.

Með aukagreiðslunni hefur náðst fram sambærileg kjarabót og í samningum félagsins við ríkið, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir. Þessar kjarabætur fyrir láglaunafólk hjá sveitarfélögunum, að stórum hluta konur í umönnunarstörfum, eru beinn árangur af verkfallsaðgerðum og staðfastri baráttu félagsmanna á höfuðborgarsvæðinu öllu síðan í byrjun febrúar,“ segir í tilkynningunni.

Önnur meginatriði samningsins eru samtals 90 þúsund króna hækkun grunnlauna í grunnþrepi yfir samningstímann, stytting vinnuvikunnar, 61 þúsund króna árlegt framlag í nýjan félagsmannasjóð og fleira.

„Baráttan fyrir réttlátu samfélagi er lifandi“

„Í enn eitt skiptið hefur Eflingarfólk í minnst metnu störfum samfélagsins sýnt að jafnvel grimmustu stofnanir valdsins hafa ekki roð við þeim þegar þau koma fram baráttuglöð og sameinuð. Í enn eitt skiptið hafa þau sannað að réttlát og staðföst barátta láglaunafólks í gegnum sitt stéttarfélag er ekki bara réttur okkar heldur skilar hún líka raunverulegum árangi,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

„Ég vil líka benda á hversu mikilvæg skilaboð félagsmenn okkar senda inn í samfélagsástandið með þessum árangri. Ef einhver hélt að kórónaveirufaraldurinn og efnahagslægðin sem honum fylgir yrði átylla til að skerða kjör láglaunafólks og berja niður í þeim baráttuandann, þá hafa félagsmenn okkar hjá sveitarfélögunum sýnt að það er ansi stór misskilningur. Baráttan fyrir réttlátu samfélagi er lifandi og hefur aldrei skipt meira máli en einmitt núna,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, við undirritun samningsins.

Samningurinn er undirritaður með fyrirvara um samþykki þeirra 270 félagsmanna sem undir honum munu starfa. Hefst nú vinna við kynningu samningsins og undirbúning atkvæðagreiðslu.

Verkfalli Eflingar gagnvart Sambandi íslenskra sveitarfélaga er með þessu aflýst og ganga félagsmenn til starfa með venjubundnum hætti samkvæmt gildandi ráðningarsamningum og kjarasamningi frá og með morgundeginum (11. maí).

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert