Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á meintu kynferðisbroti karlmanns á þrítugsaldri gegn tveimur börnum í Hafnarfirði miðar vel.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Þar segir að maðurinn hafi verið handtekinn í síðustu viku og úrskurðaður í nokkurra daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness en Landsréttur fellt úrskurðinn úr gildi.
„Húsleit var framkvæmd á heimili mannsins og lagt hefur verið hald á gögn í þágu málsins. Skýrslutökur vegna barnanna fóru fram í Barnahúsi,“ segir í tilkynningunni.