Þremur málum vísað til ríkissáttasemjara

Álver Norðuráls á Grund­ar­tanga.
Álver Norðuráls á Grund­ar­tanga. mbl.is/Árni Sæberg

Þrennum kjaraviðræðum var vísað til ríkissáttasemjara í dag. 

Um er að ræða mál Verkalýðsfélags Akraness, VR, FIT, RSÍ og Stéttarfélags Vesturlands og Samtaka atvinnulífsins vegna Norðuráls, mál Eflingar og Samtaka sjálfstæðra skóla og mál Sjómannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins vegna Herjólfs.

Þetta kemur fram á vef ríkissáttasemjara, þar sem segir að boðað verði til fundar í málunum innan tíðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert